Tilkynning frá forsætisráðherra um kjarasamninga
Þriðjudaginn 06. febrúar 1990


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
    Samkvæmt töflu er það rétt sem hv. 6. þm. Norðurl. e. sagði að hæstv. forsrh. er ekki í húsinu og þess vegna er ekki hægt að kalla hann hér inn í salinn að svo stöddu. En það er kannski rétt að taka það fram að hæstv. viðskrh. hafði látið vita af því að hann gæti ekki komið hér fyrr en um eða upp úr hálftíu svo að hann er væntanlegur á hverri stundu.