Skattskylda orkufyrirtækja
Miðvikudaginn 07. febrúar 1990


     Halldór Blöndal (um þingsköp) :
    Herra forseti. Ég er ánægður yfir því að hæstv. iðnrh. skuli lýsa því yfir í lok hvers fundar að hann vilji taka þátt í þessari umræðu. Það gerði hann á síðasta fundi líka, en svo þegar málið var til umræðu hér sendi hann orð upp um það að hann ætlaði ekki að taka til máls. Nú er hann búinn að ítreka sína fyrri yfirlýsingu og ég hlakka sannarlega til þess að málið verði tekið fyrir á næsta fundi deildarinnar.