Álver á Grundartanga
Fimmtudaginn 08. febrúar 1990


     Þórhildur Þorleifsdóttur:
    Virðulegi forseti. Í tilefni orða hv. 3. þm. Vesturl. hér rétt áðan langar mig til að beina þeirri spurningu til hans hvort ég hef ekki skilið mál hans rétt, að það væri verið að gera sérstakar ráðstafanir eða sérstakar aðgerðir væru í gangi til að draga úr atvinnuleysi á Vesturlandi og þá sérstaklega kvenna, held ég að hann hafi sagt. Mig langar til að spyrja annaðhvort hann eða hæstv. ráðherra hverjar þessar aðgerðir eða áætlanir eru.