Frumvarp um skattskyldu orkufyrirtækja
Þriðjudaginn 13. febrúar 1990


     Forseti (Jón Helgason):
    Ég vil, vegna orða hv. 2. þm. Norðurl. e., taka það fram að ég mun gera það sem í mínu valdi stendur til þess að umræðu þessari megi ljúka á þessum fundi. ( HBl: Það er nú einfalt að byrja á málinu.) Eins og hv. deildarmönnum er kunnugt hef ég oft sett þetta mál á dagskrá og reynt að halda áfram umræðu þannig að það hefur ekki staðið á því að málið hafi verið á dagskrá. En það er ekki þörf á að rekja það frekar.