Hollustuhættir og heilbrigðiseftirlit
Þriðjudaginn 13. febrúar 1990


     Frsm. heilbr.- og trn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Herra forseti. Heilbr.- og trn. hefur fjallað um fyrirliggjandi frv. um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit og leggur til að það verði samþykkt óbreytt. Til viðræðna við nefndina um frv. kom Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri í heilbr.- og trmrn. Þá barst nefndinni einnig umsögn Sambands ísl. sveitarfélaga.
    Undir þetta nál. skrifa Anna Ólafsdóttir Björnsson, Geir Gunnarsson, Ragnhildur Helgadóttir, Guðmundur G. Þórarinsson, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir og Jón Sæmundur Sigurjónsson. Hv. þm. Geir H. Haarde var fjarverandi afgreiðslu málsins.