Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Þegar mál þetta var fyrst flutt á Alþingi var annar af tveimur flm. þess fyrrv. formaður Alþfl. og fyrrv. sjútvrh. þess flokks. Ég var honum sammála um rök hans fyrir málinu og studdi hann í málflutningi hans þá og mín afstaða til málsins hefur ekki breyst. Ég segi já.