Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forseta að leyfa mér að gera stutta athugasemd. Ég gleymdi í máli mínu áðan að taka undir með hv. 11. þm. Reykv. þegar hún lagði til að dómsmrh. gerði ráðstafanir til að dreifa þessari skýrslu hér á Alþingi, þannig að þeir sem vilja standa saman að því að reka á eftir málinu geti kynnt sér efni skýrslunnar. Ég þakka henni fyrir þessa góðu ábendingu.