Flugfélagið Flying Tigers
Fimmtudaginn 15. febrúar 1990


     Fyrirspyrjandi (Ólafur Þ. Þórðarson):
    Herra forseti. Ég stend nú fyrst og fremst upp til að þakka þeim sem hér hafa tekið til máls og undirstrika hve sammála ég er þeirra málflutningi. Jafnframt vil ég færa ráðherra þakkir fyrir seinustu upplýsingar hans sem hér komu fram og ég tel að séu til hagsbóta fyrir land og þjóð. Ég undirstrika það, þetta er hluti af baráttunni um efnahagslegt sjálfstæði landsins, hvort við komumst inn á markaðinn, dýrasta markað heims eins og hér var réttilega sagt, vegna þess að það ræður öllu um viðskiptasamningsmöguleika okkar í Evrópu hvort þetta tekst eða ekki.