Flugfélagið Flying Tigers
Fimmtudaginn 15. febrúar 1990


     Kristinn Pétursson:
    Ég þakka hæstv. forseta fyrir að leyfa mér að gera örstutta athugasemd. Það var margt ágætt sem kom fram hjá hæstv. samgrh. en hann talaði um það að ég hefði komið hér með úreltar upplýsingar og ég ætla að vísa þeirri fullyrðingu til föðurhúsanna. Hvenær verða upplýsingar úreltar? ( Samgrh.: Þegar aðstæður hafa breyst.) Upplýsingar um það að flugvélar af stærðinni Boeing 747 þurfi 3160 metra við verstu skilyrði eru ekkert úreltar upplýsingar. Þetta eru staðreyndir.