Halldór Blöndal:
Hæstv. forseti. Eins og flestum er kunnugt er fiskiskip í smíðum á Slippstöðinni á Akureyri og hefur fundist kaupandi að því skipi. Á hinn bóginn er ógjörningur að halda smíði þess áfram nema fjármagn fáist sem dugi til þess að hægt sé að ljúka smíðinni. Það hefur verið viðtekin regla hér á landi undanfarin ár að 80% kostnaðar sé lánað til þeirra smíða sem fara fram innan lands. Og svo er um þetta skip að kaupandi er fundinn en á hinn bóginn stendur á því að fjárfestingarsjóðir sjávarútvegsins hlaupi þar undir bagga. Ég verð þó að taka fram að í stjórn Byggðasjóðs var samþykkt að veita 140 millj. kr. lán til þessarar smíði. En það skortir einhvern annan til að koma á móti. Tilefni mitt nú er að spyrja hæstv. iðnrh. hvað því máli líði.
Hinn 1. febr. var viðtal við blaðafulltrúa fjmrn. um þetta mál í Degi, en þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
,,Að sögn Marðar Árnasonar, upplýsingafulltrúa fjármálaráðuneytisins, var þetta mál ekki tekið fyrir í ríkisstjórninni í gær þar sem miklar annir voru í tengslum við kjarasamninga. Búist er því við að þetta mál komi til kasta stjórnarinnar í dag og ræðst því væntanlega þá hvort Ríkisábyrgðasjóður fær ósk um lánveitingu.``
Hinn 10. febr. kom þetta mál til umræðu á opnum fundi sem forsætisráðherra efndi til á Akureyri hinn 8. febr. og er frásögn blaðsins á þessa lund, með leyfi hæstv. forseta:
,,Fram kom í máli Steingríms að Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra leggi á það áherslu að málið verði aftur tekið upp í stjórn Fiskveiðasjóðs en ekki fékkst staðfest í gær hvort þetta mál verður á borði stjórnar sjóðsins næsta þriðjudag. Fram kom að við afgreiðslu málsins í stjórn Fiskveiðasjóðs fyrr í vetur hafi atkvæði fallið þannig að sex voru mótfallnir lánveitingu til Meleyrar vegna kaupa á skipinu en einn stjórnarmanna var fylgjandi.
Steingrímur vék sérstaklega í máli sínu að Kristjáni Ragnarssyni, formanni Landssambands ísl. útvegsmanna og stjórnarmanni í Fiskveiðasjóði, og sagði að hann mætti ekki ráða því hvort Fiskveiðasjóður fjármagni þessi kaup eða ekki.``
Það er auðvitað útúrsnúningur hjá hæstv. forsrh. að einn maður ráði afstöðu heillar stjórnar, sjö manna stjórnar.
Spurning mín til hæstv. iðnrh. er þessi: Samkvæmt upplýsingum blaðafulltrúa fjmrn. hefur það mál átt að koma á dagskrá ríkisstjórnarinnar að Ríkisábyrgðasjóður hlypi undir bagga, eins og venja er þegar Fiskveiðasjóður hefur ekki gert það. Er hægt að nefna mörg dæmi um það. Á hinn bóginn talar hæstv. forsrh. um að málið eigi að leysast í gegnum Fiskveiðasjóð. Fundur var í stjórn Fiskveiðasjóðs í gær og ég hygg að málið hafi ekki komið fyrir þar.
Ég hygg þess vegna, hæstv. forseti, að brýnt sé, til að eyða óvissu, að hæstv. iðnrh. skýri hver sé afstaða ríkisstjórnarinnar til þessa máls.