Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti vill taka það fram að þegar ákveðið var að taka þetta mál á dagskrá gerði hann sér ekki grein fyrir öðru en að hér væri fyrst og fremst um að ræða málefni hæstv. viðskrh. Óskin um að forsrh. væri viðstaddur kom ekki fram fyrr en í dag. Forseta er auðvitað ljúft að fara að óskum hv. 2. þm. Vestf. en vildi þá gjarnan heyra skoðun hv. 1. þm. Suðurl. og talar hann nú um þingsköp.