Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti harmar að svo hefur farið sem raun er á að dagskrá hefur töluvert raskast. Ég vil þó taka fram að utandagskrárumræða fór fram á umsömdum tíma, en ljóst var að svo margir mundu óska eftir að ræða um annað dagskrármál að forsetum þótti ekki rétt að eyða deginum án þess að það mál hlyti umræðu.
    Vegna þessarar umræðu sem hér um ræðir vil ég hins vegar endurtaka það að ekki var sérstök ósk fyrirliggjandi um það að hæstv. forsrh. þyrfti nauðsynlega að vera vistaddur þessa umræðu.