Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Miðvikudaginn 21. febrúar 1990


     Frsm. félmn. (Rannveig Guðmundsdóttir):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. félmn. um frv. til laga um ráðstafanir vegna kjarasamninga.
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. og mælir með samþykkt þess með breytingu sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali. Breytingin er við 7. gr. frv. og miðar að því að gera ákvæði greinarinnar skýrara. Þessi breyting er flutt að höfðu samráði við eftirtalda aðila er komu á fund nefndarinnar um málið: Láru V. Júlíusdóttur, framkvæmdastjóra Alþýðusambands Íslands, Þórarin V. Þórarinsson, framkvæmdastjóra Vinnuveitendasambands Íslands, Björn Arnórsson, hagfræðing Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Hjört Eiríksson, framkvæmdastjóra Vinnumálasambands samvinnufélaga, Hauk Halldórsson, formann Stéttarsambands bænda, og Gísla Karlsson, framkvæmdastjóra Framleiðsluráðs landbúnaðarins.
    Þá komu jafnframt á fund nefndarinnar María Jóna Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands ísl. hitaveitna, Eiríkur Þorbergsson, framkvæmdastjóri Sambands ísl. rafveitna, Sigurður Snævarr, hagfræðingur
við Þjóðhagsstofnun, Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands, Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða, Sigríður Kristinsdóttir, frá Samtökum kvenna á vinnumarkaði, og Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.``
    Undir nál. rita allir nefndarmenn, Rannveig Guðmundsdóttir, Guðrún Helgadóttir, Anna Ólafsdóttir Björnsson, Eggert Haukdal, Geir H. Haarde, Jón Kristjánsson og Alexander Stefánsson.
    Ég vil geta þess að nefndin sá ekki ástæðu til að fjalla um brtt. 634 sem flutt var við 1. umr. af Hreggviði Jónssyni og Inga Birni Albertssyni þar sem nefndin taldi efni hennar ekki vera beinlínis tengt þessu frv. En brtt. 639, sem nefndin flytur, hljóðar svo:
    ,,Í stað orðanna ,,er verðlagsnefnd búvöru heimilt að fresta`` í 7. gr. komi: skal verðlagsnefnd búvöru fella niður.``
    Eins og kom fram í nál. þá mælir nefndin með að frv. verði samþykkt með þeirri breytingu sem nefndin gerir tillögu um.