Stefán Valgeirsson:
    Virðulegi forseti. Allt þetta mál er náttúrlega dálítið sérkennilegt og svar hæstv. utanrrh. við þessari fsp. Bókun ríkisstjórnarinnar getur ekki gilt að öðru leyti en því hvaða stuðning hún hefur meðal þeirra þingmanna sem styðja þessa ríkisstjórn. Og við það sem hv. þm. Hjörleifur Guttormsson sagði hér bætist það að ég hef lýst því yfir að ég telji það alveg út í hött á þessu stigi, eins og mál standa, að vera að stefna að miklum umræðum um þetta mál, a.m.k. á því sviði að stefna að inngöngu í Efnahagsbandalagið.