Forkönnun á hagkvæmni varaflugvallar
Fimmtudaginn 22. febrúar 1990


     Eiður Guðnason:
    Virðulegur forseti. Mín athugasemd er örstutt. Mér þótti ræða hæstv. samgrh. kyndug. Orðið forkönnun getur ekki eftir mínum málskilningi falið í sér ákvörðun um framkvæmd. Það gerir það ekki, engan veginn. Og þess vegna sýnist mér annaðhvort hæstv. samgrh. ekki skilja stjórnarsáttmálann eða ekki íslensku nema hvort tveggja sé.