Forkönnun á hagkvæmni varaflugvallar
Fimmtudaginn 22. febrúar 1990


     Þorsteinn Pálsson:
    Frú forseti. Hæstv. utanrrh. bar það á mig að ég hefði verið með aðdróttanir um það að Alþb. hefði beitt neitunarvaldi í þessu efni. Hann hefur algerlega misskilið orð mín. Ég var þvert á móti að sýna fram á að Alþb. hefur ekkert slíkt neitunarvald, en það hefur hótað að svipta hæstv. ráðherra ráðherrastólnum og hann hefur bognað fyrir þeim hótunum. Það er niðurstaða málsins.