Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Hæstv. forseti. Á þskj. 566 hefur hv. 6. þm. Reykv. lagt fyrir mig spurningu um það hvað líði störfum nefndar sem skipuð var samkvæmt þál. sem samþykkt var á Alþingi 5. mars 1987, um samfélagsþjónustu sem úrræði í viðurlagakerfinu og hvenær nefndin muni ljúka störfum og skila niðurstöðum.
    Samkvæmt upplýsingum frá Þorsteini Geirssyni ráðuneytisstjóra sem er formaður nefndarinnar er nefndin að vinna að lokaniðurstöðum í skýrslu sinni og mun væntanlega ljúka störfum fyrir vorið.