Forseti (Árni Gunnarsson):
Forseti hafði vænst þess að unnt yrði að ljúka umræðu og atkvæðagreiðslu um þetta samkomulagsmál fyrir þingflokkafundi kl. 4. Hann vonar enn að svo geti orðið. Ef hv. þm. stytta ræður sínar þá mun það takast. Ella verður að fresta þessum fundi til kl. 6 þegar þingflokksfundum er lokið.