Sveitarstjórnarlög
Þriðjudaginn 06. mars 1990


     Frsm. félmn. (Margrét Frímannsdóttir):
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum. Nál. er á þskj. 624 og er frá félmn. Frv. var flutt af hv. þm. Salome Þorkelsdóttur og er á þskj. 216. Hér er aðeins um tvær greinar að ræða þar sem í 1. gr. kveður á um það að við 1. tölul. 6. mgr. 6. gr. sveitarstjórnarlaga þar sem upptalning er á verkefnum sveitarstjórna bætist við nýr liður svohljóðandi: varnir gegn slysum.
    2. gr. er um gildistöku þess 1. júní 1990.
    ,,Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og bárust umsagnir um málið frá Fjórðungssambandi Norðlendinga, Sambandi sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum og Umferðarráði. Í frumvarpinu er lagt til að lögfest verði að eitt af verkefnum sveitarfélaga sé að vinna að slysavörnum.
    Nefndin er sammála um að mæla með samþykkt frumvarpsins enda er það skoðun nefndarmanna að til þess að ná árangri í slysavörnum sé nauðsynlegt að vinna að slíkum málum í hverju byggðarlagi fyrir sig. Telja verður að meiri líkur séu á skipulegu forvarnarstarfi ef sveitarstjórn hefur það verkefni að fylgjast með slíkum málum heima í héraði, t.d. með því að sameina krafta þeirra sem að þessum málum vinna beint eða óbeint.
    Guðmundur H. Garðarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.``
    Aðrir nefndarmenn skrifa undir nál.