Veiting ríkisborgararéttar
Þriðjudaginn 06. mars 1990


     Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um veitingu ríkisborgararéttar á þskj. 627. Í 1. gr. frv. eru talin upp tíu nöfn manna sem sótt hafa um íslenskan ríkisborgararétt og að mati dómsmrn. uppfylla allir þau skilyrði sem Alþingi hefur sett fyrir veitingu ríkisborgararéttar á undanförnum árum. Í 2. gr. eru sömu ákvæði um nafnabreytingar og gilt hafa síðustu árin.
    Ég legg til, hæstv. forseti, að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og hv. allshn.