Ábyrgðadeild fiskeldislána
Miðvikudaginn 14. mars 1990


     Ingi Björn Albertsson:
    Hæstv. forseti. Á grundvelli þess að einhvers konar samkomulag hefur verið gert um þær brtt. sem nú er verið að greiða atkvæði um án þess að það samkomulag hafi verið kynnt þingflokki frjálslyndra hægrimanna á nokkurn hátt og einnig og ekki síður í ljósi þess að frv. þetta mun leiða til enn frekari ríkisforsjár sem er þvert á stefnu hægrimanna segi ég nei.