Sektarmörk nokkurra laga
Þriðjudaginn 20. mars 1990


     Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á sektarmörkum nokkurra laga o.fl. sem flutt er á þskj. 687. Frv. þetta um breytingu á sektarmörkum nokkurra laga sem er hér lagt fram fyrir hv. þingdeild fjallar um breytingu á sektarviðurlagaákvæðum í yfir 40 lögum, lögum sem hafa að geyma ákvæði þar sem sekt er tiltekin sem krónutala.
    Frv. er flutt í framhaldi af endurskoðun ákvæða í sérrefsilögum á árinu 1982 og 1983 en þá var breytt sams konar ákvæðum í um 120 lögum. Frv. er undirbúið í tengslum við störf lagahreinsunarnefndar sem starfað hefur undanfarin ár samkvæmt ályktun Alþingis eins og kom fram í næsta máli hér á undan.
    Hér hefur verið tekið mið af tillögum sem sú nefnd hefur gert um brottfall laga sem úrelt eru talin og er þá ekki fjallað um refsiviðurlög í þeim lögum. Endurskoðun sektarákvæðanna miðar að því að almennt sé byggt á sektarhámarki hegningarlaganna en sérstakt lágmark og hámark að öðru leyti fellt niður. Sektarhámark hegningarlaganna er nú 4 millj. kr. samkvæmt lagabreytingu frá árinu 1985. Má segja að tímabært sé að hækka þá fjárhæð þó það sé ekki lagt til með þessu frv. Auk breytinga á sektarákvæðum felur frv., eins og hin fyrri lög um sama efni, einnig í sér breytingar á ákvæðum þar sem vísað er til málsmeðferðar til samræmis við gildandi réttarfar. Loks eru lagðar til breytingar á nokkrum dagsektarákvæðum í lögum enda þótt þar sé ekki um heildarendurskoðun slíkra ákvæða að ræða. Rétt er að taka fram að við undirbúning frv. voru frumvarpsdrög send öllum ráðuneytum til athugunar.
    Hæstv. forseti. Ég leyfi mér að leggja til að frv. þessu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. allshn.