Fjárgreiðslur úr ríkissjóði
Þriðjudaginn 20. mars 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Vegna orða hv. síðasta ræðumanns vill forseti taka fram að nú eru eftir í þinghúsinu 17 þingmenn þannig að ekki mun verða unnt að koma málinu áfram til 2. umr. og nefndar í kvöld en mun verða gert í byrjun fundar á morgun. Forseti vill nú geta þess að þrátt fyrir ummæli ræðumanns og gott samkomulag um umræður um þetta mál þá hefur það nú tekið þó nokkurn tíma í umræðum í hv. deild.