Tilraunastöð Háskólans í meinafræði
Föstudaginn 23. mars 1990


     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Ég vildi aðeins lýsa ánægju minni með að þetta frv. er komið hér fram. Það er áreiðanlegt að það hefur verið tímabært að endurskoða þessi lög. Ég vil aðeins láta í ljós að ég mun stuðla að því að þetta mál fái góða meðferð í hv. menntmn. þar sem ég á sæti í nefndinni og ætla því ekki að fara úr í einstakar greinar frv. hér við 1. umr.