Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 7/1975, um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, 1972, sbr. lög nr. 56/1986. Nefndin hefur rætt frv. og leggur til að það verði samþykkt án breytinga.