Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Virðulegi forseti. Til þess að taka af öll tvímæli þá er það alveg ljóst frá mínum bæjardyrum séð að hv. 2. þm. Vestf. gengur gott eitt til þegar hann hreyfir þessu máli og ekkert annað ætla ég honum. Þess vegna vonast ég til þess að nefndin sem um þetta fjallar kveðji til þá menn sem dómbæra mætti telja um þetta atriði.