Forseti (Árni Gunnarsson):
    Vegna þessarar óskar hv. 17. þm. Reykv. vill forseti geta þess að hv. þm. gæti tekið upp þessa umræðu við 2. umr. um málið og fer þess vinsamlega á leit við hann að forseti fái lokið þessari umræðu sem búin er að standa mjög lengi þannig að málið geti komist í nefnd við atkvæðagreiðslu á þriðjudag.