Rannsóknir og vísindastarfsemi
Fimmtudaginn 29. mars 1990


     Eiður Guðnason (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Það er auðvitað alveg ljóst að umræður um fyrirspurnir eru komnar úr böndunum þrátt fyrir góðan vilja forseta og tilraunir til þess að halda þeim innan þeirra reglna sem við höfum sjálf sett okkur. Ég legg til að við höldum okkur við þær reglur sem við höfum sjálf sett okkur.