Fyrirspyrjandi (Friðrik Sophusson):
    Virðulegur forseti. Ég vil eingöngu láta það koma fram, og það er örstutt, að ég tel að hæstv. ríkisstjórn hefði átt að nota hluta af þeim 500 millj. sem koma inn á fyrri hluta þessa árs, 170 millj. kr., til að greiða uppsafnaðan söluskatt iðnfyrirtækja á sl. ári.