Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
    Virðulegi forseti. Örstutt athugasemd. Ég vildi beina því til virðulegs forseta hvort hv. fyrirspyrjandi --- sem alveg nýlega hlaut hrós frá hæstv. forseta Sþ. fyrir góða framgöngu í þinginu sem ég get vel tekið undir --- hafi ekki farið á svig við þingsköpin. Þeim mun alvarlegra virðist mér þetta að hann hafi nú tekið fjórum sinnum til máls undir ýmsu yfirskini um þingsköp en í reynd í efnisumræðu um fsp. sem búið var að svara.