Ingi Björn Albertsson (um þingsköp) :
Hæstv. forseti. Sem þingflokksformaður Frjálslynda hægriflokksins tók ég þátt í því samkomulagi sem forseti hefur gert að umtalsefni. Ég tel að sá flokkur hafi uppfyllt það samkomulag en vil ekki fjalla meira um það. Ég vil hins vegar taka undir málflutning hv. þm. Guðmundar H. Garðarssonar þegar hann gerir athugasemdir við mætingu hér í þingsal. Ég þarf ekki annað en að minna á mætingu hér í gærkvöldi þegar ég talaði í máli er varðar umhverfisráðuneyti. Sumum þykir það nú allstórt mál og mikið forgangsmál þessarar ríkisstjórnar. Þá sátu hér í þingsal þetta einn til tveir þingmenn. Annar þingmaðurinn var hinn helmingurinn af mínum ágæta þingflokki og hinn þingmaðurinn sem sat í salnum var sá sem beið eftir því að tala á eftir mér.
Ég skil mætavel óskir hv. þm. Guðmundar H. Garðarssonar. Hann vill svara hæstv. forsrh. sem hér talaði þannig í dag að það gerir kröfu til þingmannsins að hann svari. Þess vegna er eðlilegt að hann krefjist þess að hæstv. forsrh. sé viðstaddur umræðuna enda er um slíkt mál að ræða, slíkt stórmál fyrir þjóðina að forsrh. á að vera skylt að vera viðstaddur alla umræðuna.
Ég vil því taka undir fyrir hönd þingflokks frjálslyndra hægrimanna að þessari umræðu verði nú frestað og henni haldið áfram á morgun.