Ábyrgðadeild fiskeldislána
Þriðjudaginn 03. apríl 1990


     Eyjólfur Konráð Jónsson (um atkvæðagreiðslu) :
    Herra forseti. Ég hef haft samband við hv. þm. Halldór Blöndal sem er veikur. Hann hefur falið mér að draga brtt. sína til baka með hliðsjón af því að hann taki þá undir ummæli formanns nefndarinnar um að sú lagaskýring sem hann flutti muni halda og mun ég því greiða atkvæði á móti.