Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
Virðulegi forseti. Með þáltill. þessari fer ríkisstjórnin þess á leit að Alþingi heimili staðfestingu samnings um gagnkvæma viðurkenningu úr niðurstöðum prófana og staðfestingu á samræmingaraðgerðum sem gerður var í Tampere 15. júní 1988. Að auki er farið þess á leit að Alþingi heimili fullgildingu bókunar um beitingu samningsins gagnvart Liechtenstein en sá samningur var gerður í Tampere sama dag. Samningurinn er liður í viðleitni Evrópuríkja til að draga úr tæknilegum viðskiptahindrunum til að stuðla að óhindruðum vöruviðskiptum á evrópska efnahagssvæðinu. Samningurinn ryður burt hindrunum vegna prófana vara sem settar eru á markað í öðrum EFTA-ríkjum og vegna staðfestingar á því að þær uppfylli kröfur sem gerðar eru, fyrst og fremst grunnkröfur um vernd heilsu, öryggis og umhverfis. Markmið samningsins er að stuðla að því að prófanir sem gerðar hafa verið í EFTA-ríkjum gildi fyrir vörur sem eru settar á markað innan Efnahagsbandalags Evrópu.
Í tillögum nr. 122 og 169 um stefnu í atvinnumálum er bent á margar leiðir sem geta falist í stefnu í vinnumarkaðsmálum. Ég vil vekja athygli á nokkrum þeirra. Í 14. gr. í tillögu nr. 122 er lögð áhersla á hlutverk vinnumiðlunar í því að framleiðni fyrirtækja verði sem mest, m.a. með því að útvega fólk til starfa til þess að hindra samdrátt í framleiðslu vegna manneklu. Þeir sem þekkja til starfsemi vinnumiðlunar í landinu vita að á þessu sviði þarf að gera betur. Efla þarf starfsemi vinnumiðlunarinnar, m.a. með auknu samstarfi sveitarfélaga og gera hana virkari en hún er.
Einnig er vakin athygli á gildi starfsþjálfunar og endurmenntunar sem gerir starfsfólki kleift að takast á við ný eða breytt verkefni. Loks er minnt á gildi starfsmenntunar, eins og ég vék að áður. Þar er m.a. kveðið á um það að aðildarríki skuli kappkosta að tryggja með viðeigandi ráðstöfunum að launafólki séu gefin tækifæri með menntun og þjálfun til að aðlagast nýjum kröfum vegna tæknibreytinga. Við þetta má bæta að í ýmsum ályktunum Evrópubandalagsins á sviði vinnumarkaðsmála er fjallað um mikilvægi starfsmenntunar og er ljóst að bandalagið kemur til með að verja verulegum fjárupphæðum til þeirrar starfsemi á næstu árum.
Þótt í fullgildingu alþjóðasamþykktar nr. 122 felist einungis skuldbinding um að fylgt sé stefnu sem miði að því að veita öllum næga arðbæra atvinnu eftir frjálsu vali felur hún í sér hvatningu til að móta heildarstefnu í atvinnumálum sem taki til fjölmargra þátta. Samkvæmt samþykktinni hafa stjórnvöld gott svigrúm til stefnumótunar sem tekur mið af séraðstæðum í hverju landi þar sem hún er mjög almennt orðuð og er vísað til tillögunnar um nánari útfærslu.
Ég vil að síðustu, virðulegi forseti, geta þess að leitað hefur verið álits þriggja aðila á því hvort fullgilda eigi alþjóðasamþykkt nr. 122. Þeir eru
Alþýðusamband Íslands, Vinnumálasamband samvinnufélaganna og Vinnuveitendasamband Íslands. ASÍ mælir eindregið með því að ríkisstjórninni
verði heimiluð fullgilding. Vinnumálasambandið og VSÍ leggjast ekki gegn fullgildingu. Loks er rétt að það komi fram að alþjóðasamþykkt nr. 122 er meðal þeirra sem flest aðildarríki Alþjóðavinnumálastofnunarinnar hafa fullgilt. Hinn 1. jan. 1989 höfðu 72 ríki fullgilt samþykktina.
Virðulegi forseti. Ég vil leyfa mér að leggja til að þessari þáltill. verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. félmn.
Af þessu tilefni vil ég láta þess getið að í undirbúningi er samningur milli Íslands og Svíþjóðar um samstarf á þessu sviði, þ.e. að eftirlitsstofnun Svía, sem hefur undir sinni stjórn um 250 aðrar eftirlitsstofnanir og hefur fengið sérstaka viðurkenningu Evrópubandalagsins, láti okkur í té slíkar staðfestingar og prófanir á varningi sem þar með njóti viðurkenningar í Evrópubandalagslöndunum.
Virðulegi forseti. Í 5. gr. þessa samnings er gert ráð fyrir því að gerðir verði sérstakir samningar um einstök framleiðslusvið. Til þess að íslensk stjórnvöld geti tekið virkan þátt í samvinnu á því sviði er unnið að frv. til laga um fyrirkomulag gagnkvæmrar viðurkenningar hér á landi og um stöðlun og tengda starfsemi.
Ég leyfi mér, virðulegi forseti, að leggja til að tillögunni verði að lokinni þessari umræðu vísað til síðari umr. og hv. utanrmn.