Hreggviður Jónsson:
    Hæstv. forseti. Hér liggur fyrir nál. um þáltill. um könnun á aðstöðu einstaklinga með glúten-óþol frá félmn. og hefur hún lagt til að henni verði vísað til ríkisstjórnarinnar og geri ég ekki athugasemd við það. Það er hins vegar svo að þessi sjúkdómur er enn ekki skráningarskyldur, þannig að ýmsar upplýsingar um hann eru ekki fyrir hendi í dag. Það er nýlega sem hann hefur verið tekinn til rannsóknar hér á landi og því ýmis atriði sem eru óljós enn þá um þennan sjúkdóm. Hins vegar hafa farið fram miklu víðtækari rannsóknir á þessum sjúkdómi annars staðar á Norðurlöndunum og meiri upplýsngar eru til þar um þau vandamál sem hljótast af honum.
    Ég vonast hins vegar til að með þessu verði yfirvöldum í heilbrigðis- og tryggingamálum gert kleift að vinna betur að þessum málum og koma því þannig fyrir að þessir sjúklingar fái einhverja úrlausn sinna mála.