Jöfnun orkukostnaðar
Mánudaginn 09. apríl 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Vegna þessara orða hv. 3. þm. Reykv. vill forseti benda á að í 34. gr. þingskapalaga, upphafsorðum, segir svo:
    ,,Skylt er þingmönnum að sækja alla þingfundi nema nauðsyn banni. Forföll skal tilkynna forseta svo fljótt sem unnt er og metur hann nauðsynina.``