Ferðamál
Þriðjudaginn 10. apríl 1990


     Frsm. meiri hl. samgn. (Egill Jónsson):
    Virðulegi forseti. Það kom fram í máli hv. 6. þm. Vesturl. Danfríðar Skarphéðinsdóttur að e.t.v. væri ástæða til að gera örlitlar breytingar á nefndarálitinu. Að sjálfsögðu er eðlilegt að nefndin hafi möguleika á að fjalla um þær ábendingar sem ég hygg að séu kannski eðlilegar fljótt á litið. Af þeirri ástæðu eru brtt. teknar til baka til 3. umr.