Samningur um aðstoð í skattamálum
Þriðjudaginn 10. apríl 1990


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Hér er um að ræða frv. til laga um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Norðurlanda um aðstoð í skattamálum. Það er álit fjh.- og viðskn. að rétt sé leggja til að frv. verði samþykkt án breytinga og að því nál. standa allir nefndarmenn.