Húsnæðisstofnun ríkisins
Mánudaginn 23. apríl 1990


     Halldór Blöndal (um þingsköp) :
    Herra forseti. Ber að skilja þetta hlé svo að ekki eigi að taka raforkumálin fyrir að nýju? Eða eru einhverjar aðrar ástæður fyrir því að umræðu er slitið með þessum hætti? Mér finnst eðlilegt að umræður geti haldið áfram viðstöðulaust um það mál sem hér er á dagskrá.