Málefni aldraðra
Miðvikudaginn 25. apríl 1990


     Þorsteinn Pálsson:
    Herra forseti. Ég stend fyrst og fremst upp til þess að þakka hv. 1. þm. Vesturl. Hann hefur talað hér skýrar en aðrir talsmenn stjórnarflokkanna, gefið hér ákveðnar yfirlýsingar um vilja sinn í þessu efni, og ég sé ástæðu til þess að þakka það og fagna því að hann skuli hafa talað svo skýrt með þessum hætti.