Frsm. utanrmn. (Jóhann Einvarðsson):
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nál. utanrmn. um till. til þál. um staðfestingu samnings um gagnkvæma viðurkenningu á niðurstöðum prófana og staðfestingum á samræmi sem er 466. mál þingsins. Nál. er eins og fyrri nál. sem ég hef farið með hér í dag stutt og laggott:
    ,,Nefndin hefur fjallað um tillöguna og leggur til að hún verði samþykkt.``
    Undir þetta rita allir meðlimir utanrmn.