Félagsráðgjöf
Föstudaginn 27. apríl 1990


     Frsm. heilbr.- og trn. (Stefán Guðmundsson):
    Hæstv. forseti. Ég tala hér fyrir nál. heilbr.- og trn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 41/1975, um félagsráðgjöf. Nefndarálitið hljóðar svo:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. en það er unnið í samvinnu heilbr.- og trmrn. og Stéttarfélags íslenskra félagsráðgjafa. Leggur nefndin til að frv. verði samþykkt óbreytt.``
    Undir nál. rita Stefán Guðmundsson, Salome Þorkelsdóttir, Valgerður Sverrisdóttir, Guðmundur H. Garðarsson, Margrét Frímannsdóttir, Guðrún Agnarsdóttir og Karl Steinar Guðnason með fyrirvara.