Forseti (Geir H. Haarde):
Þannig háttar til að óskað hefur verið eftir tíma til þingflokksfunda milli kl. 14 og 15. Forsetar beggja deilda hafa orðið ásáttir um að veita hlé til kl. 15 til þess að auðnast megi að halda þingflokksfundi. Þessum fundi verður því frestað nú og honum fram haldið kl. 15. Forseti vill geta þess að strax þegar fundur hefst að nýju kl. 15 má vænta hér atkvæðagreiðslna þannig að þingmenn eru beðnir að vera í salnum kl. 15. --- [Fundarhlé.]
Fundi er fram haldið í neðri deild Alþingis. Áður en gengið er til dagskrár vill forseti segja nokkur orð varðandi þinghaldið í dag og á morgun að því er varðar fundi hér í hv. þingdeild. Það er ætlun forseta að halda áfram í dag fram undir kvöldmat og hefja síðan fund að nýju kl. 10 í fyrramálið. Það verður sem sé ekki kvöldfundur í dag, þriðja kvöldið í röð í þessum sal. Hins vegar er gert ráð fyrir því að fundurinn á morgun geti dregist fram eftir degi eftir því hverju fram vindur með afgreiðslu mála þeirra sem á dagskrá eru.
Það er ætlunin að afgreiða eins mikið af málum og kostur er á þessum degi. Ef ástæða verður til er hugsanlegt að boðað verði til annars fundar hér síðar í dag til að koma málum áleiðis til nefnda eða milli umræðna.