Karl Steinar Guðnason:
Hæstv. forseti. Félmn. hefur rætt frv. um breytingu á sveitarstjórnarlögum sem fjallar um það að varamenn geti tekið sæti í bæjarráði eða hreppsráði ef mönnum sýnist svo. Það hefur ekki verið hægt til þessa öðruvísi en óformlega. Þeir sem valist hafa sem varamenn í stað aðalmanna hafa ekki haft atkvæðisrétt, en nú mun það breytast samkvæmt frv.
Nefndin leggur til að frv. verði samþ. óbreytt, var samstiga í þeirri umsögn.