Skákskóli Íslands
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Valgerður Sverrisdóttir:
    Hæstv. forseti. Í fjarveru frsm. flyt ég hér álit menntmn. Ed. á frv. til laga um Skákskóla Íslands. Nál. er á þskj. 1120 og hljóðar svo:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. og mælir með samþykkt þess með þeim breytingum sem gerðar voru á því í Nd.``
    Undir nál. rita Eiður Guðnason, Guðrún Agnarsdóttir, Halldór Blöndal, Salome Þorkelsdóttir, Jón Helgason, Skúli Alexandersson og Valgerður Sverrisdóttir.