Gjald af erlendum lánum vegna skipasmíða
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Valgerður Sverrisdóttir:
    Hæstv. forseti. Með tilliti til orða hæstv. fjmrh. í umræðunni hér fyrir nokkrum dögum þess efnis að tekið verði á vanda Slippstöðvarinnar á Akureyri sérstaklega og þar sem hér er um tiltölulega lága upphæð að ræða þegar litið er til þess vanda sem það fyrirtæki á við að stríða, þá greiði ég atkvæði með meiri hl. hv. fjh.- og viðskn. og segi já.