Stjórn fiskveiða
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Forseti (Jón Helgason):
    Forseti Sþ. hefur lagt það til að formenn þingflokka hittist ásamt forsetum núna. Ég mun þá gera hlé á þessum fundi í korter. --- [Fundarhlé.]
    Á fundi þeim sem hefur verið haldinn á ný með forsetum og formönnum þingflokka kom ekkert annað þar fram en haldið yrði við það samkomulag um afgreiðslu mála hér sem gert hafði verið fyrr í kvöld og reyndar þegar á mánudaginn.