Stjórn fiskveiða
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Halldór Blöndal (um þingsköp) :
    Herra forseti. Ég þakka fyrir röggsamleg viðbrögð og þakka forseta fyrir að hann skuli staðfesta það sem hæstv. forsrh. sagði með sínum hætti hér áðan að þinglausnir verði á laugardag. Það er þá ljóst að við það verður staðið og ég þakka hæstv. forseta fyrir að hann skyldi hafa brugðist svo röggsamlega við. Þá er öllum efa eytt og þinghaldið getur haldið áfram með þeim hætti að við þessa hina síðustu starfsáætlun Alþingis verði staðið. Það er stundum kostur við starfsáætlanir Alþingis að þær eru ekki prentaðar. Þá er frekar von til þess að við þær sé staðið.