Stjórn fiskveiða
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Danfríður Skarphéðinsdóttir (um atkvæðagreiðslu) :
    Virðulegi forseti. Hér hefur tillögu okkar í Kvennalistanum um byggðakvóta verið hafnað. Ég sé því ekki ástæðu til að bera fram aðrar tillögur sem allar ganga út frá því að veiðiheimildum sé úthlutað til sveitarfélaga og þess vegna dreg ég brtt. til baka.