Stjórn fiskveiða
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Halldór Blöndal:
    Herra forseti. Þær breytingar sem hafa verið gerðar á frv. og þær breytingar sem hafa verið gerðar á frv. um Úreldingarsjóð fiskiskipa, sem verða að skoðast í samhengi, eru allar til hins verra. Þær eru óeðlilegar og óskynsamlegar og þær koma mjög að óvart þeim sem unnu að undirbúningi þessa frv. Ég segi nei.