Yfirstjórn umhverfismála
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Páll Pétursson (um þingsköp) :
    Herra forseti. Fjh.- og viðskn. deildarinnar hélt fund á mánudag og fjallaði þar um þetta mál m.a. Við munum halda fund á morgun og taka þá þetta mál fyrir. Ég skal ekki segja hvað við komumst langt með það, en það er verið að vinna í málinu og ég stefni að því að halda fund og vona að ekkert komi upp á sem hindrar það og reikna með því að einhver mál afgreiðist úr nefndinni á morgun.